Tónlistarmaðurinn Ásgeir, í samstarfi við RÚV og Rás 2, mun taka upp eins margar 7” vínylplötur og hann kemst yfir samfleytt í 24 klukkustundir í hinu sögufræga hljóðveri Hljóðrita í Hafnarfirði dagana 5. og 6. júlí næstkomandi. Bein útsending verður frá upptökunum á RÚV 2 og RÚV.is í svokölluðu hægvarpi.
Ásgeir mun taka einfaldar og öðruvísi útgáfur af eigin lögum og jafnvel fá góðkunn lög eftir aðra listamenn að fljóta ef sá gállinn er á honum. Lögin verða tekin upp beint á vínyl með vínylskurðarvél og verður því hver útgáfa lags einungis til í einu eintaki og þar af leiðandi er hver vínylplata algjörlega einstakur gripur.
Í þessar 24 klukkustundir sem útsendingin varir mun Ásgeir fá til sín nokkra góða gesti sem aðstoða við upptökur eða detta inn í kaffibolla og spjall.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar Vinyll.is fékk aðstöðu í Hljóðrita en um er að ræða litla „vínylverksmiðju” sem handskrifar vínylplötur og endurtekur ferlið fyrir hverja plötu sem þarf að gera. Með “vínylverksmiðjuna” staðsetta í Hljóðrita skapaðist tækifæri til að taka upp beint á vínyl og búa þannig til eitthvað alveg einstakt fyrir aðdáendur Ásgeirs um heim allan. Þeim mun svo gefast tækifæri til að næla sér í eintak í alþjóðlegri fjársjóðsleit (Treasure Hunt) sem verður kynnt betur síðar. Einnig er mögulegt að lítið upplag af framleiðslunni fari í sölu síðar meir.
Útsendingin frá Hljóðrita hefst kl 17.00 miðvikudaginn 5. júlí og stendur, eins og áður segir, yfir í 24 klukkustundir. Um er að ræða útsendinginu í anda hægvarps eða „Slow TV“ sem á uppruna sinn að rekja til NRK, norska ríkissjónvarpsins. NRK hefur sent beint út klukkustundum saman frá sömu athöfninni eins og ferjuferð, prjónaskap og fuglabjargi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem RÚV tekst á við hægvarp því fyrir um ári síðan var sýnt beint frá hringferð hljómsveitarinnar Sigur rósar í 24 klukkustundir og þar á undan hafði verið sýnt beint frá sauðburði við góðar undirtektir landsmanna.
Til viðbótar við beina útsendingu á vef RÚV og á RÚV 2 verður hægt að horfa á útsendinguna á Youtube-rás Ásgeirs og fylgjast með lýsingu og myndum frá upptökunum á Twitter og Instagram síðum Ásgeirs og RÚV. Rás 2 mun einnig taka virkan þátt í viðburðinum og upplýsa hlustendur um gang mála í Hljóðrita.
Við hvetjum landsmenn alla til að fylgjast með útsendingunni og taka þátt í henni með sköpunargleðina að leiðarljósi. — #asgeirstraighttovinyl.
Umræðan