Tónlistarkonan Steinunn Þorsteinsdóttir eða einfaldlega Steinunn eins og hún kallar sig var að senda frá sér glænýtt lag og myndband sem nefnist „Amsterdam.“
„Upp á síðkastið hef ég verið að fást við myndbandagerð við lögin mín, sem hefur verið mjög skemmtilegt og áhugavert að vinna með tónlist á myndrænan hátt.“ – Steinunn.
Umræddu lagi má lýsa sem rólyndis elektrónísku poppi og rennur það afar ljúft inn í undirmeðvitund hlustandans. Hér er á ferðinni ung og efnileg tónlistarkona sem gaman verður að fylgjast með!
Umræðan