Arnar (A. Handsome) og Kiddi (Ghozt) snúa bökum saman og ætla efla til trylltrar dansveislu á Kofanum á laugardaginn kemur og munu þeir spila rjómann af því besta allt frá djúpu húsi yfir í eðal teknó. Það má búast við frábærri stemningu enda engir viðvaningar þarna á ferð. Allt kvöldið verður í beinni útsendingu á FM Xtra 101.5
Bætt hefur verið við auka hljóðkerfi og ljósum frá Ofur hljóð/ljós þannig ekki missa af þessu gott fólk, þakið mun rifna af!
Lofað er fríu knúsi fyrir fyrstu þúsund gestina.
HANDSOME
https://www.mixcloud.com/arnosss/
GHOZT
Umræðan